
Við sýnum hvernig vefsíðan www.totamaja.is var sett upp í Dreamweaver og birt á vefnum. Kennslan er í 5 hlutum og tekur samtals u.þ.b. 20 mínútur. Með því að styðjast við sýnikennsluna eiga allir að geta sett upp eigin vefsíðu. Dreamweaver er eitt af helstu vefsíðugerðarforritunum á markaðinum.
Fram að þessu höfum við fyrst og fremst boðið upp á skýringar við einstaka atriðum sem notendur hafa þurft hjálp við. Nú ætlum við hins vegar að auka þjónustu við notendur vefsins og bjóða upp á námskeið miðuð eftir getu. Fyrsta námskeiðið er í Word fyrir byrjendur.
Með því að láta Outlook búa sjálfkrafa til undirskrift og þurfa ekki að skrifa í hvert skipti kveðju, nafn, heimilisfang, fyrirtæki og fleira má spara umtalsverðan tíma. Við sýnum hvernig það er gert í þessari sýnikennslu sem tekur 2 mínútur og 10 sekúndur.
Það er orðin sjálfsögð krafa í útgáfu rita í dag að láta fylgja með atriðaorðaskrá
fari þau upp yfir ákveðinn blaðsíðufjölda. Við sýnum í þessari sýnikennslu
hvernig það er gert.
Í dag sýnum við hvernig efnisyfirlit er búið til í Word. Sýnikennslan
tekur þrjár mínútur og fjörutíu sekúndur.
Við sýnum ykkur í þessari sýnikennslu hvernig hægt er með einföldum hætti að breikka dálka í Excel þannig að allur texti sjáist í þeim. Það tekur tæplega tvær mínútur að fara í gegnum sýnikennsluna.
Office 2003 er mjög sveigjanlegt varðandi útlitsmótun. Hægt er m.a. að gera breytingar á myndum sem eru á tækjastikunni. Við skoðum í þessari æfingu sem tekur eina mínútu og tuttugu og fimm sekúndur hvernig það er gert.
Í Word er sjálfvirkt leiðréttingarkerfi, þannig
að ef orð er ekki rétt stafsett birtist rautt strik undir því og
grænt ef það er málfræðivilla. Leiðréttingarkerfið er
gert fyrir enskan texta. Við íslenskan texta merkir það við öll
orð, sem er bæði óþarft og truflandi. Við skoðum
hvernig við getum gert leiðréttingarkerfið óvirkt í þessari
sýnikennslu sem tekur eina mínútu og þrjátíu
sekúndur að fara í gegnum.
Í lok
síðasta mánaðar kynntum við IF fallið með einföldu
dæmi, þar sem með hjálp fallsins var skrifað F
fyrir framan þá nemendur sem voru með lægri einkunn
en 5,0. Í dag höldum við áfram og látum forritið gefa
nemendum einkunnirnar A, B og F allt eftir því hvað þeir
fengu í prófinu. Í lok kennslunnar sýnum
við annað dæmi þar sem fjórir bókstafir
eru notaðir til einkunnargjafar. Það tekur þrjár og hálfa mínútu að
fara í gegnum sýnikennslu dagsins.
Við
bjóðum í dag upp á kennslu fyrir byrjendur í Word og sýnum hvernig nýtt
skjal er búið til. Það tekur eina mínútu og þrjátíu og fimm
sekúndur að fara í gegnum kennsluefnið.
![]()
Við sýnum í dag nokkrar leiðir til að opna forritið Word. Sýnikennslan tekur 55 sekúndur.