Fyrsta námskeiðinu er skipt í 8 þætti og tekur samtals 14 mínútur
að fara í gegnum það. Við munum sýna hvernig nýtt skjal er búið
til eða eldra skjal opnað og hvernig hægt er að
afrita (copy), klippa (cut) og líma (paste) texta. Þá munum við
skoða hvernig útliti texta er breytt, t.d. með því að feitletra
orð, undirstrika, stækka letur og breyta leturgerð.
Texti valinn með bendlinum: stafur, orð, setning,
málsgrein, allur texti. Eftir að texti hefur verið valinn
er hægt að gera breytingar á honum, t.d. að strika
undir hann og breyta um lit.