skip to: page content | links on this page | site navigation | footer (site information)

 

Áskrift | Hjálp | Skólavefurinn

Word

Forsíða / Word

 

Afrita, klippa og líma

smelltu á rauðu orðin til að velja sýnikennslu

Tækjastikan notuð

1:45
  • Tækjastikan notuð til að afrita, klippa og líma
 

Lyklaborðið notað

2:00
  • Lyklaborðið notað til að afrita, klippa og líma.
 

Bendillinn notaður

0:45
  • Texti færður til (klippa og líma) með bendlinum.

Hægrismellt með músinni

2:10
  • Hægrismellt með músinni. Afritað, klippt og límt.
 

Texti úr öðru skjali

1:20
  • Allur texti úr öðru skjali límdur inn, án þess að opna það skjal.

Klemmuspjald (clipboard)

4:05
  • Klemmuspjald geymir allt að 24 atriði sem hafa verið afrituð eða klippt.
  • Hægt að líma í öll forrit Office, t.d. önnur ritvinnsluskjöl, Excel og Powerpoint.
  • Hægt að hreinsa klemmuspjaldið, bæði einstök atriði eða allt.

 

Afturkalla aðgerð

smelltu á rauðu orðin til að velja sýnikennslu

Afturkalla aðgerð(ir) með tækjastiku

3:15
      Sýnt er hvernig afturkalla má aðgerð(ir) með því að nota tækjastiku. Dæmi: texta óvart eytt. Hægt að kalla fram textann aftur með því að afturkalla aðgerðina.
 

Afturkalla aðgerð(ir) með lyklaborði

2:40
  • Sýnt er hvernig afturkalla má aðgerð(ir) með því að nota lyklaborðið. Dæmi: texta óvart eytt. Hægt að kalla fram textann aftur með því að afturkalla aðgerðina.

 

Opna og loka

smelltu á rauðu orðin til að velja sýnikennslu

Opna og loka skjali

1:50
  • Sýnt er hvernig skjal er opnað og lokað

Vista

smelltu á rauðu orðin til að velja sýnikennslu

Vista og vista sem... (Save, Save as.)

2:20
  • Skjal vistað með því að nota valreinina.
  • Skjal vistað með því að nota lyklaborðið.
  • Skjal vistað undir nýju nafni.

Sjálfvirk vistun

1:50
  • Flestir hafa lent í því að tölvan frjósi eða rafmagn fari skyndilega af. Þá er eins gott að vera búinn að vista það sem við erum að gera í tölvunni, en út á það gengur einmitt kennsla dagsins. Í henni lærið að stilla sjálfvirka vistun með reglulegu millibili. Já, það er gott að hafa vaðið fyrir neðan sig þegar tölvur eru annars vegar. Sýnikennslan tekur einungis eina mínútu og fimmtíu sekúndur.

Texti valinn

smelltu á rauðu orðin til að velja sýnikennslu

Allur texti í skjali

1:20
  • Texti valinn með lyklaborði og valrönd.

Frá bendli

1:30
  • Allur texti fyrir framan bendil valinn.
  • Allur texti fyrir aftan bendil valinn.

Með örvartökkum

2:40
  • Texti valinn með örvartökkum á lyklaborðinu : stafur, orð, setning, málsgrein.

Með F8

1:10
  • Texti valinn með F8: orð, setning, málsgrein, allur texti.

Með bendli

1:40
  • Texti valinn með bendlinum: stafur, orð, setning, málsgrein, allur texti.

Bendill og lyklaborð

1:30
  • Texti valinn með því að smella fremst og aftast.
  • Nokkur textabrot valin í einu.

Eins texti valinn (hægrismellt)

1:05
  • Texti með sama sniði lýstur upp, t.d. Arial 12 pt.
  • Snið upplýstu orðanna breytt.

 

Haus/Síðufótur (Header/Footer)

smelltu á rauðu orðin til að velja sýnikennslu

Haus (header) - síðufótur (footer)

2:50
  • Haus (header) og síðufótur (footer) birtast á öllum síðum skjals, þar sem þeir hafa verið settir inn. Sýnt er í þessari sýnikennslu hvernig það er gert.

 

Letur

smelltu á rauðu orðin til að velja sýnikennslu

Feitletur/Skáletur/Undirstrik - lyklaborð

2:00

Lyklaborðið notað til að

  • feitletra
  • skáletra
  • strika undir orð

Undirstrik - Ólíkar tegundir

2:30
  • Ólíkar tegundir undirstrika.
  • Litur á undirstrikum
  • Strik bara undir orðum.

Stærð og gerð leturs

2:50
  • Leturgerð breytt
  • Stærð leturs breytt.

Margvíslegt snið texta (Effects)

2:40
  • brjóstletur (superscript)
  • hnéletur (subscript)
  • strikað yfir texta
  • skuggi (shadow)
  • útlínur (outline)
  • upphleypt letur (emboss)
  • grafið letur (engrave)
  • stórir stafir
  • falinn texti

Textalitur

1:50
  • Lit á texta breytt.

Snið texta afritað (paint)

2:05
  • Einföld leið til að afrita snið texta og líma á annan texta eða textabrot.

Stafsetur (Case)

3:05
  • Stórir stafir breytast í litla og öfugt.
  • Allir stafir gerðir litlir
  • Allir stafir gerðir stórir
  • Stór stafur í upphafi setningar.
  • Fyrsti stafur allra orða stór.

Character Spacing - Scale

1:40
  • Stafir breikkaðir
  • Stafir mjókkaðir

Character Spacing - Position

1:50
  • Texti færður hærra í línu.
  • Texti færður lægra í línu.

Character Spacing - Spacing

2:20
  • Bil á milli stafa aukið.
  • Bil á milli stafa minnkað.

Sjálfgefið snið texta

1:10
  • Texta gefið sjálfgefið snið. (Taskpane)

Reveal formatting (Task Pane) - Word 2002

2:45
  • Task pane - Reveal formatting kallað fram.
  • Almennt yfirlit á Reveal formatting (RF).
  • Snið texta skoðað í RF.
  • Snið texta breytt í RF.

Reveal formatting - select text (Task Pane) - Word 2002

3:30
  • Texti með sama sniði lýstur upp, t.d. Arial 12 pt.
  • Orði gefið snið texta sem er fyrir framan og aftan það.
  • Orði gefið sjálfgefið snið.
  • Samanburður á sniði tveggja textabrota.
  • Textabrot lýst upp og svo annað með ólíku sniði. Seinna textabrotinu gefið snið þess fyrri.

Íslenskar gæsalappir

4:30
  • Eitt af því sem við Íslendingar verðum að sætta okkur við er að tölvuforrit og ýmis búnaður er ekki hannaður með hliðsjón af tungumálinu okkar. En þrátt fyrir það eru til ýmiss konar úrræði til að laga búnaðinn að okkar ylhýra máli. Við kennum ykkur að setja upp íslenskar gæsalappir á tölvunni ykkar sem þið getið sótt í hratt og örugglega. Og kennslan tekur ekki nema fjórar og hálfa mínútu.

Sjálfgefið snið leturs

2:40
  • Þegar nýtt Word skjal er opnað og byrjað að skrifa í því er textinn alltaf í sömu leturgerð og stærð; venjulega í Times New Roman 12. Við sýnum í dag hvernig þessu sjálfgefna sniði er breytt, t.d. í Arial 14.

 

 

Töflur

smelltu á rauðu orðin til að velja sýnikennslu

Ný tafla

2:30
  • Skoðaðar þrjár leiðir til að útbúa töflu.

Dálkar og raðir

4:30
  • Fjöldi raða og dálka
  • Röðum og dálkum bætt við.
  • Raðir í töflu gerðar jafnháar.
  • Dálkar í töflu gerðir jafnbreiðir.
  • Reitum skipt, þ.e. búið er til marga reitir úr einum.
  • Reitir sameinaðir.

Hæð og breidd

2:15
  • Hæð og breidd breytt með bendlinum.
  • Staðsetning á orði í reit breytt á tækjastiku.

Útlit töflu

2:45
  • Tækjastika fyrir töflur
  • Reit skipt
  • Reitir sameinaðir
  • Bakgrunnslitur
  • Litur á línum
  • Tegund lína
  • Þykkt lína
  • Tafla teiknuð

Samlagning, meðaltal - Formúlur

3:05
  • Tölur í töflu lagðar saman.
  • Meðaltal talna í töflu fundið.

Staðsetning texta (Align) - Stefna texta (textdirection)

1:55
  • Staðsetning texta ákvörðuð, þ.e. hvar texti liggur í reit (til hægri, í miðju, til vinstri, uppi eða neðri.)
  • Stefna texta, þ.e. hvort hann er láréttur eða lóðréttur.

Orðalisti settur í töflu

2:25
  • Sýnt er hvernig umbreyta má venjulegum texta þannig að hann birtist í töflu. Þetta getur t.d. verið gagnlegt með orða- eða nafnalista.

Töflutexta breytt í venjulegan texta

2:30
  • Sýnt er hvernig texta í töflu er breytt í venjulegan texta, t.d. nafnalisti í töflu er tekinn úr töflu og eftir stendur upptalning á nöfnum með greinarmerkjum á milli.

 

Prenta

smelltu á rauðu orðin til að velja sýnikennslu

Prenta

3:50
  • Prenttáknmynd á tækjastiku.
  • Forsýn. Sýnir hvernig skjal prentast út.
  • Lang- og þversnið.
  • Litur - s/h
  • Blaðsíður sem prenta á út.
  • Eintakafjöldi.

Senda bréf til margra

smelltu á rauðu orðin til að velja sýnikennslu

Prenta á merkimiða í Word - gögn úr Excel skjali

6:50
  • Þegar senda þarf til margra aðila í einu getur verið mikið hagræði í því að útbúa fyrst nafnalista yfir þá sem senda á til í Excel og nota síðan þann lista til að prenta á merkimiða í Word. Í þessari æfingu er sýnt hvernig það er gert.

    Prenta á merkimiða í Word - gögn úr Outlook

    5:40
    • Nöfn og heimilsföng viðskiptavina sótt í nafnalista í Outlook og raðað á merkimiða (límmiða) í Word.
    • Prentað á merkimiða.

Bréf með nafni viðtakenda. Nafnalisti sóttur í Excel

10:30
  • Sýnt er hvernig prentuð eru í einu lagi bréf til viðskiptavina, þar sem nafn og heimilisfang kemur fyrir í hverju bréf. Gögnin eru sótt úr nafnalista í Excel.

Bréf með nafni viðtakenda - Nafnalisti sóttur í Outlook

5:45

 

 


Sýnt er hvernig útbúið er dreifibréf í Word, þar sem hvert bréf hefur nafn viðskiptavinar og heimilisfang í haus bréfsins. Nafnalistinn er sóttur í Contacts í Outlook.

Sjálfvirk leiðrétting

smelltu á rauðu orðin til að velja sýnikennslu

Autocorrect - tákn

1:30
  • Tákn kölluð fram með því að nota AutoCorrect.
  • Þau tákn skoðuð sem standa til boða.
  • Hægt að skilgreina ný tákn.

Autocorrect - nýr texti, tákn

3:50
  • Texti, tákn og myndir skráðar í AutoCorrect. Skammstöfun notuð til að kalla fram texta eða myndir. T.d. ef slegið er inn (gd) þá birtist textinn Góðan daginn!

Sjálfvirk leiðrétting: breyta/undantekning

2:30
  • Í Word forritinu er sjálfvirkur leiðréttingarbúnaður, sem getur gert vinnuna þægilegri, en getur líka stundum verið til trafala. Eitt slíkt atriði er þegar Word breytir sjálfkrafa í stóran staf á eftir punkti. Kemur þetta sér illa þegar skammstafanir á borð við t.d. eru notaðar. Við sýnum hvernig má koma í veg fyrir þetta og stilla leiðréttingarbúnaðinn þannig að ekki birtist stór stafur á eftir ákveðnum skammstöfunum.

Efnisyfirlit (Table of contents)

smelltu á rauðu orðin til að velja sýnikennslu

Efnisyfirlit

3:40
  • Sýnt er hvernig efnisyflir er búið til í Word.

 

Sniðmát (Template)

Sniðmát (Template) eru skjöl sem er búið að útbúa og eru oft að mestu leyti tilbúin til notkunar. Það getur sparað tíma að nota sniðmát, auk þess sem þau eru oft smekklega hönnuð og bera vott um fagmennsku.
smelltu á rauðu orðin til að velja sýnikennslu

Sniðmát (Template)

3:05
  • Bréf
  • Fax
  • Skýrslur
  • Dagatal
  • Minnisskjal
  • o.fl.

Umhverfi

smelltu á rauðu orðin til að velja sýnikennslu

Tækjastikur

3:20
  • Tækjastikur skoðaðar.
  • Tækjastikur gerðar sýnilegar.
  • Tækjastikur faldar.

Ýmislegt

smelltu á rauðu orðin til að velja sýnikennslu

Sjálfvirk leiðrétting gerð óvirk

1:30

Í Word er sjálfvirkt leiðréttingarkerfi, þannig að ef orð er ekki rétt stafsett birtist rautt strik undir því og grænt ef það er málfræðivilla. Leiðréttingarkerfið er gert fyrir enskan texta. Við íslenskan texta merkir það við öll orð, sem er bæði óþarft og truflandi. Við skoðum hvernig við getum gert leiðréttingarkerfið óvirkt í þessari sýnikennslu.

Sjálfvirk ræsing

1:30
  • Flestir nota aðallega ákveðin forrit við vinnu sína, t.d. Word, Outlook og Internet Explorer. Í stað þess að ræsa hvert þeirra fyrir sig á hverjum degi er hægt að ræsa þau sjálfkrafa þegar kveikt er á tölvunni og með því sparað nokkurn tíma.
  • Office 2003 - Þýða valmynd yfir á íslensku

    2:30

  • Í nýjustu útgáfu af Office pakkanum frá Microsoft er stórskemmtileg nýjung. Hægt er að þýða textann á tækjastikunni yfir á íslensku. Við sýnum hvernig það er gert í þessari æfingu.

    Office 2003 - Setja myndir fyrir framan tengla á valmyndinni

    2:20

  • Við sýnum hvernig setja má myndir fyrir framan tenglana á valmyndinni.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Um okkur | Síðuyfirilit | Skilmálar | Hafðu samband við okkur | ©2003 Námstorg ehf.