skip to: page content | links on this page | site navigation | footer (site information)

Áskrift | Hjálp | Skólavefurinn

Windows XP

Forsíða / Windows

 

Skjáborð

smelltu á rauðu orðin til að velja sýnikennslu

Yfirlit

2:05

  • Stutt yfirlit um skjáborðið.

Hreinsað til á skjáborði

3:20
  • Lítið notaðar skrár og forrit hreinsuð af skjáborði.
  • Hægt er að láta minna sig á það á 60 daga fresti að hreinsa skrár af skjáborðinu.

Einlita bakgrunnur

1:40
  • Bakgrunnur texta á skjáborði gerður einlitur. Gott fyrir sjónskerta og þá sem eiga í lestrarörðugleikum

Táknmyndir á skjáborði stækkaðar

1:30
  • Táknmyndir á skjáborði og ræsivali stækkaðar.
  • Gott fyrir sjónskerta

Skjáborð kallað fram

1:10
  • Lyklaborð notað til að kalla fram skjáborðið.
  • Hægrismellt - valmynd.

Upplausn á skjáborði breytt

1:45
  • Stundum þegar unnið er með mörg skjöl og forrrit í einu getur verið gott að auka upplausnina, þannig að meira sjáist á skjánum í einu. Við sýnum hvernig þetta er gert í þessari sýnikennslu.

Notendaaðgangur

smelltu á rauðu orðin til að velja sýnikennslu

Notendasvæði

1:20
  • Skipt á milli notenda.
  • Forrit geta verið í gangi, þó að farið sé yfir á annað notandasvæði.

Nýr aðgangur stofnaður

2:25

  • Nýr aðgangur búinn til.
  • Takmarkaður aðgangur.
  • Fullur aðgangur.

Aðgangi breytt - Takmarkaður/fullur

2:00
  • Tegund á aðgangi breytt. Takmarkaður aðgangur/fullur aðgangur.

Aðgangi lokað

2:30

  • Aðgangi eytt:
  • gögn notanda varðveitt
  • gögnum notanda eytt.

Nafni á aðgangi breytt

1:30

  • Nafni á aðgangi (User account) breytt, t.d. úr Gunnar í Gunni.

Leyniorði breytt eða það búið til

2:20
  • Leyniorð búið til/breytt.
  • Hægt er að velja hvort nota þurfi leyniorð.

Mynd breytt

1:50
  • Breytt um mynd sem birtist við notandanafnið.
  • Hægt er að velja um nokkrar myndir eða nota sínar eigin.

Verkefnastika (Taskbar)

smelltu á rauðu orðin til að velja sýnikennslu

Autohide (XP)

1:30
  • Hægt er að breyta stillingum þannig að verkefnastikan hverfi ef bendillinn er ekki yfir henni og þannig stækkað svæði til að vinna á.

Táknmyndir stækkaðar í hraðvali

1:10
  • Táknmyndir (icon) stækkaðar í hraðvali.
 

Gluggi til að slá inn veffang

2:05
  • Hægt er að opna vefsíðu beint af verkefnastikunni.

Hraðræsing (Quick Launch)

4:00
  • Hraðræsing gerð sýnileg.
  • Á hraðræsingu er hægt að opna vel valin forrit.
  • Á hraðræsingu er takki sem kallar fram skjáborðið. Getur verið hentugt þegar margir gluggar eru opnir.

Ræsival

smelltu á rauðu orðin til að velja sýnikennslu

Raða í stafrófsröð (windows XP útlit)

1:00
  • Með tímanum safnast yfirleitt mikið af forritum undir All Programs. Til að greiða úr óreiðu sem myndast oft við það getur verið gott að raða listanum í stafrófsröð. Sýnt er hvernig það er gert í þessari æfingu í Windows XP.

Raða í stafrófsröð (classic útlit)

1:20
  • Með tímanum safnast yfirleitt mikið af forritum í ræsivalinu. Til að greiða úr óreiðu sem myndast oft við það getur verið gott að raða í stafrófsröð. Sýnt er hvernig það er gert í þessari æfingu fyrir hefðbundið útlit (classic, ekki Windows XP)

Ræsival - Hægri hluti

4:00
  • Skoðaður er hægri hluti ræsivalsins og sýnt hvernig stjórna má því hvort smella þurfi á möppur eða fara yfir þær með bendlinum. Einnig er farið yfir það hvernig bæta má við eða fjarlægja af listanum.

My Recent Documents

2:15
  • Í My Recent Documents er hægt að sjá lista þau skjöl sem unnið hefur verið nýlega í. Sýnt er hvernig hægt er að finna listann. Sýnt hvernig listinn er hreinsaður.

Útliti breytt til að líkjast eldri stýrikerfum

1:45
  • Sumir nýir notendur Windows XP sakna gamla útlitsins á ræsivalinu. Microsoft hugsaði fyrir óánægju þeirra og bjóða að breyta útlitinu þannig að það sé eins og það var áður. Sýnt er hvernig það er gert hér.

Táknmyndir minnkaðar (xp-útlit)

1:10
  • Sýnt hvernig táknmyndir í ræsivali eru minnkaðar. Við að gera það er hægt að koma fyrir fleiri táknmyndum

Táknmyndir minnkaðar (classic útlit)

1:05
  • Sýnt hvernig táknmyndir af forritum í ræsivali eru minnkaðar. Við að gera það er hægt að koma fyrir fleiri táknmyndum.

Nýjum tenglum í forrit bætt við ræsivalið

4:10
  • Sýnt hvernig nýjum táknmyndum af forritum er bætt við efst í ræsivalinu (Windows XP hefðbundið útlit).

Nýjum tenglum í forrit bætt við ræsivalið (classic útlit)

1:55
  • Sýnt hvernig nýjum táknmyndum af forritum er bætt við efst í ræsivalinu (Classical útlit).

Prenta

smelltu á rauðu orðin til að velja sýnikennslu

Prentari - sjálfgefinn

1:05
  • Sýnt hvernig prentari er gerður sjálfgefinn, þannig að þegar gefin er prentskipun prentist frá ákveðnum prentara.

Deila prentara (share)

1:55
  • Í Windows XP geta þeir sem eru á innra neti notað sama prentarann. Hér er farið yfir þær stillingar sem gera þarf til þess.

Prentstaða - hætt við prentun

2:50
  • Sýnt er hvernig má fylgjast með stöðu prentunar og hvernig hægt er að gera hlé á prentun eða stöðva prentun.

Sjálfgefið (default) svarthvítt eða litur

1:50
  • Hægt er að stilla hvort það sé sjálfgefið að prenta í lit eða svarthvítu. Í þessari æfingu er sýnt hvernig það er gert.

Prenta skjal - Windows Explorer

0:35
  • Sýnt hvernig skjal er prentað úr Windows Explorer án þess að opna það fyrst.

Prenta - af skjáborði

1:40
  • Sýnt hvernig skjal er prentað af skjáborðinu án þess að opna það fyrst.

Leturgerðir (Font)

smelltu á rauðu orðin til að velja sýnikennslu

Leturgerðir (Fonts) settar inn (Install) - XP

1:50
  • Sýnt er hvernig leturtegundum er bætt við í Windows.

Leturgerðir sem eru líkar Font - similarity

2:00
  • Hægt er að láta Windows finna leturtegundir sem eru mjög svipaðar.

 

Möppur, skjöl, myndir...

smelltu á rauðu orðin til að velja sýnikennslu

Windows Explorer - yfirlit

4:30
  • Í þessari sýnkennslu er sýnt hvernig skjöl og möppur eru skipulagðar í Windows. Er hér um að ræða mjög mikilvæga undirstöðu og hvetjum við alla sem þekkja ekki vel hvernig möppukerfið er uppbyggt að gefa sér þær fjórar og hálfa mínútu sem þarf til þess að fara í gegnum sýnikennsluna.

    Windows Explorer - Mappa búin til / nafni breytt / möppu eytt

    2:25

  •  

  • Til að halda utan um gögn á tölvunni er best að flokka þau í möppur. Við sýnum hvernig möppur eru búnar til, nafni á þeim breytt og hvernig hægt er að eyða möppu.

Windows Explorer - Undo (afturkalla aðgerðir)

2:10

Flestir hafa sennilega lent í því að mappa eða skjal lendi á röngum stað þegar verið er að breyta staðsetningu, gögn eyðist eða nafni er breytt af slysni. Þá er gott að geta afturkallað aðgerð. Við sýnum hvernig það er gert í þessari sýnikennslu.

Velja margar möppur, myndir og skjöl í einu.

2:15

Í Windows Explorer flokkum við og skipuleggjum gögn okkar á tölvunni. Það er gagnlegt að kunna að velja margar möppur, skjöl eða myndir í einu, sem síðan er hægt að afrita, klippa eða eyða og sýnum við hvernig það er gert í þessari sýnikennslu.

Afrita, klippa og líma

 

Í fyrri hlutanum er sýnt hvernig það er gert með því að nota valmynd en í seinni kennslubútnum er sýnt hvernig hægt að færa möppur og skrár til með músinni.

Með valmynd 2:00
Með mús
2:25

View: Thumbnails, Details...

4:25

Í Windows Explorer er hægt að velja um nokkur myndrænar framsetningar á skrám, t.d. þegar leitað er að myndum er oft hentugt að nota Thumbnails eða Filmstrip því þá sést smækkuð útgáfa af myndinni. Þegar þarf að fá upplýsingar um stærð, hvenær skránni var breytt síðast, skráðan höfund veitir Details nákvæmusutu upplýsingarnar. Við skoðum í þessari æfingu þá möguleika sem standa til boða.

Windows Explorer - flýtihnappur (shortcut)

1:20
  • Sýnt er hvernig hægt er að búa til flýtihnapp (shortcut) í Windows Explorer, en með því að smella á einn slíkan er hægt að opna skjal, möppu eða forrit beint af skjáborðinu.

  • Ruslakarfa (Recycle Bin)

  • 2:50

  • Einhverjir kannast eflaust við þá angistartilfinningu sem fylgir því að hafa eytt óvart mikilvægu skjali eða möppu. Það er engin ástæða til að örvænta þó að það gerist, því Windows eyðir ekki gögnunum strax heldur setur í sérstaka ruslakistu. Við skoðum í þessari æfingu ruslafötuna, hvernig hægt er að endurheimta gögn sem lent hafa í henni og hvernig er hægt að eyða gögnum endanlega af tölvunni.

 

Mús

smelltu á rauðu orðin til að velja sýnikennslu

Stillingar á músartökkum

1:40

  • Flestir örvhentir hafa músina vinstra megin en eru með sömu stillingu á músartökkunum og ef hún væri hægra megin. Það finnst mörgum óþægilegt, því þá þurfa þeir að nota löngutöng í stað vísifingurs fyrir þann takka á músinni sem oftast er notaður. Við sýnum hvernig breyta má stillingu á músartökkunum þannig að hún henti örvhentum. Sýnikennslan tekur einungis eina mínútu og fjörutíu sekúndur. Windows XP - Músartakkar
  • Windows CL - Músartakkar

     

Brenna á geisladisk

smelltu á rauðu orðin til að velja sýnikennslu

Brenna á geisladisk

2:20
  • Í Windows XP fylgir forrit sem gerir þér kleift að brenna gögn á geisladiska á mjög svo auðveldan og aðgengilegan hátt. Við sýnum hvernig það er gert í þessari sýnikennslu.

 

 

Ýmislegt

smelltu á rauðu orðin til að velja sýnikennslu

All Programs - möppur

5:15
  • Til að auðvelda skipulagningu í All programs er hægt að útbúa möppur.

    • mappa í efri hluta All Programs.
    • mappa í neðri hluta All Programs.
    • mappa aðgengileg
      • öllum notendum
      • bara einum notenda.

Lyklaborð - breytt um tungumál

3:05
  • Sumir hafa lent í því að nota tölvu erlendis þar sem lyklaborðið er stillt fyrir tungumál viðkomandi lands. Þá getur reynst erfitt að fá fram séríslenska stafi eins og á, ð, é, þ. Við sýnum hvernig breyta má því fyrir hvaða tungmál lyklaborðið er stillt. Kennslan tekur þrjár mínútur og fimm sekúndur.

     

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Um okkur | Síðuyfirilit | Skilmálar | Hafðu samband við okkur | ©2003 Námstorg ehf.