
Sýnt er hvernig náð er í vafrann Opera af Netinu og hvernig hann er settur upp á tölvu.
Sýnt er hvernig breytt er um upphafssíðu í Opera. Upphafssíða er sú vefsíða sem birtist fyrst þegar vafrinn er opnaður og sem opnast þegar smellt er á Home takkann á tækjastiku vafrans.


Sýnt er hvernig hægt er að reikna dæmi með því að nota Google, sem innbyggt er í vafrann.
Við kynnum fyrir ykkur aðferð sem flýtir fyrir og auðveldar að nota Netið til heimildaöflunar. Við sýnum hvernig nota má minnisblöð (Notes) í vafranum Opera, en með því að nota þau er með einföldum hætti hægt að afrita texta og flokka í möppur og þannig leggja grunninn að ritgerð eða annarri hugmyndavinnu. Hver minnispunktur sem afritaður er er jafnframt tengill, þannig að alltaf er hægt að fara aftur á vefsíðuna sem textinn var á með því að smella á minnispunktinn. Þá er einnig hægt að skrifa inn í kerfið minnispunkta. Hér er á ferðinni mikið þarfaþing sem enginn fræðimaður, námsmaður eða hver sem annars notar Netið til að afla sér upplýsinga má láta fram hjá sér fara.
Þessi
sýnikennsla ætti að nýtast
vel þeim sem nota Netið í heimildaöflun. Í gegnum eftirlæti í vafranum
Opera er hægt að opna alla tengla sem eru í möppu í einu.
Með því að nýta sér þetta
getur maður gengið beint til verks og opnað allar þær
vefsíður sem maður þarf að nota í upphafi
og smellt síðan á flipana efst til að fara á milli þeirra.

Margir eru orðnir langþreyttir á auglýsingaborðum sem spretta upp þegar farið er inn á ákveðnar vefsíður. Í vafranum Opera er hægt að gefa skipun um að stöðva alla sprettiglugga. Við sýnum hvernig það er gert í kennslubút dagsins sem tekur eina mínútu og fjörutíu og fimm sekúndur.
Sýnt
er hvernig hægt
er að fá ókeypis póstfang frá Opera,
með góðu geymsluplássi fyrir póst.

Landsbyggðarmenn sem orðið hafa útundan í netsambandsþjónustu og þurfa ennþá að notast við 56 kb símalínur til að ferðast um veraldarvefinn ættu að fagna þessari sýnikennslu , því að í henni er sýnt hvernig hægt er að kalla fram vefsíður án mynda í vafranum Opera, sem gerir það að verkum að flestar vefsíður eru margfalt fljótari að koma fram.