skip to: page content | links on this page | site navigation | footer (site information)

 

Áskrift | Hjálp | Skólavefurinn

Internet Explorer

Forsíða / Internet Explorer

 

Upphafssíða (Home page)

smelltu á rauðu orðin til að velja sýnikennslu

Upphafssíða (Home page)

1:40
  • Sýnt er hvernig hægt er að stjórna því hvaða vefsíða kemur fyrst upp á skjáinn þegar Internet Explorer er opnaður.

 

Eftirlæti (Favorites)

Favorites er notað til að safna áhugaverðum vefslóðum. Þá þarf ekki að skrifa slóðina heldur einungis smella á tengil í Favorites til að opna vefsíðuna.
smelltu á rauðu orðin til að velja sýnikennslu

Almennt um Favorites

2:55
  • Sýnt hvernig bæta má við vefslóðum í Favorites

Skipuleggja (Organize)

2:20
  • Mikilvægt er að flokka og skipuleggja vefslóðir sem settar eru í Favorites til að auðvelt sé að finna þær aftur. Hér er sýnt hvernig það er gert.

Inn- og útflutningur (Import/Export)

 

 


Flytja út (export) eftirlæti
Einfalt er að flytja út (export) vefslóðir úr Favorites. Það getur verið gagnlegt ef færa þarf eftirlæti (favorites) úr einni tölvu í aðra eða ef setja á tenglasafn á Netið.
2:55

Flytja inn (import) eftirlæti Sýnt er hvernig flytja má inn á tölvu tenglasafn sem flutt hefur verið út (export) af annari tölvu 2:35

History (sögumappa)

smelltu á rauðu orðin til að velja sýnikennslu

History (sögumappa)

3:20
  • ,,History" eða sögumappan segir til um hvaða vefsíður hafa verið heimsóttar á viðkomandi tölvu. Geymir hún slíkar upplýsingar oft í talsverðan tíma. Getur þetta oft verið einkar þægilegt og hjálpað fólki að finna aftur áhugaverðar síður. Hér er farið yfir sögumöppuna og sýnt hvernig hægt er að stilla hve langt aftur í tímann yfirlit er geymt.

 

Leita(Find)

smelltu á rauðu orðin til að velja sýnikennslu

Leita (Find)

2:05
  • Hægt er að leita að orðum á vefsíðum í Internet Explorer. Hér er sýnt hvernig það er gert með:

  • músinni
  • lyklaborðinu

Umhverfið

Þegar vafrinn er opnaður í fyrsta skipti er hann með sjálfgefna stillingu sem hentar vel flestum notendum. Það getur þó komið sér vel að kunna að breyta umhverfinu, ef fyrir slysni sjálfgefnar stillingar breytast eða ef þörf er á meira skjáplássi. Hægt er t.d. að fela tækjastikurnar efst í vafranum og stækkar þá glugginn umtalsvert sem vefsíður birtast í.

smelltu á rauðu orðin til að velja sýnikennslu

Tækjastikur (Toolbar)

2:30
  • Sýnt hvernig tækjastikur eru faldar og gerðar sýnilegar .

Tækjastikur faldar - F11

2:40
  • Til að fá stærra skjápláss er hægt að fela tækjastikur með því að smella á F11.

Tenglar (Links)

2:05
  • Mörgum finnst þægilegt að vera með tengingar í þær vefsíður sem þeir fara oftast á í tenglasafninu í vafranum. Hér er sýnt hvernig hægt er að bæta við tenglum og fjarlægja tengla.

Tækjastikur færðar til og læst

2:40
  • Hægt er að færa til tækjastikur með bendlinum. Sýnt er hvernig það er gert og einnig hvernig læsa má tækjastiku þannig að hún færist ekki til af misgáningi.

Örugg netnotkn

smelltu á rauðu orðin til að velja sýnikennslu

Örugg netnotkun

6:30
  • Í nýlegri könnun (SAFT) kemur fram að meirihluti barna telur sig geta notað Netið eftirlitslaust. Könnunin leiðir auk þess í ljós að um helmingur barna hefur komist í kynni við klámefni og þriðjungur ofbeldisefni á Netinu. Við á Námstorginu höfum orðið vör við áhyggjur margra foreldra vegna þessa og höfum því útbúið sýnikennslu um það hvernig foreldri getur haft eftirlit með netnotkun barna sinna. Barn og foreldri koma sér saman um þær vefsíður sem barnið má fara inná. Ef barnið reynir að komast inn á aðrar vefsíður en um var samið þarf foreldri að slá inn sérstakt leyniorð til að opna síðuna fyrir barnið. Á tiltölulega skömmum tíma ætti foreldri að geta opnað fyrir flestar þær síður sem barnið notar og innihalda ekki varasamt efni. Með tiltölulega lítilli fyrirhöfn getur foreldri leyft barni sínu að fara um Netið án þess að þurfa að hafa áhyggjur af því sem það kann að finna þar. Framsetning sýnikennslunar er svo greinileg að allir geta lært að setja upp eftirlitskerfið, líka þeir sem eru mjög óöruggir á tölvur.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Um okkur | Síðuyfirilit | Skilmálar | Hafðu samband við okkur | ©2003 Námstorg ehf.