skip to: page content | links on this page | site navigation | footer (site information)

 

Áskrift | Hjálp | Skólavefurinn

Google

Forsíða /Google

 

Ýmislegt

smelltu á rauðu orðin til að velja sýnikennslu

Leitað á Netinu með Google

4:20
  • Eitt af því sem allir sem nota tölvur þurfa að kunna er er að leita í leitarvélum. Við bjóðum uppá fyrstu kennsluna um leitarvélar og er í henni skoðað hvernig leita má í leitarvélinni Google, en Google er í dag mest notaða leitarvélin á Netinu. Við sýnum hvernig þrengja má leitina og fá þannig fram lista af vefsíðum sem innihalda helst það efni sem við erum að leita eftir.

Fjöldi niðurstaðna

1:30
  • Við sýnum hvernig hægt er að velja hve margar niðurstöður birtast í einu þegar leitað er í Google. Sjálfgefið er að 10 niðurstöður birtast, en einnig er hægt að velja 20, 30, 50 og 100.

Google - tækjastika fyrir Internet Explorer

 

Sýnt er hvernig Google tækjastika er sett í vafrann Internet Explorer. Með því að hafa tækjastikuna í vafranum þarf ekki lengur að fara sérstaklega inná vefsíðu Google til að leita, heldur er hægt að slá inn leitarorð beint í glugga í vafranum. Frá tækjastikunni er hægt að framkvæma allt það helsta sem í boði er á vefsíðu Google. Kennslubútar eru tveir. Í þeim fyrri er sýnt hvernig tækjastikan frá Google er sett í vafrann og í þeim seinni hvernig tækjastikan er fjarlægð.

Bæta við tækjastiku ( Install)
Fjarlægja tækjastiku (Uninstall)

Tækjastika - Sprettigluggar

1:35

 

 

Við skoðum hvernig með hjálp tækjastikunnar frá Google er hægt að koma í veg fyrir að auglýsingagluggar spretti fram.

Tækjastika - Sjálfvirk útfylling fyrir form á Netinu

5:15

Einn af valmöguleikum tækjastikunnar frá Gogole er að fylla sjálfkrafa út form sem víða þarf að fylla út á vefnum, t.d. nafn, heimilisfang, síma og netfang. Við sýnum hvernig skráðar eru upplýsingar í AutoFill á tækjastikunni. Eftir að upplýsingarnar hafa verið settar inn í eitt skipti þarf ekki annað en að smella á takka til að fylla út form á Netinu.

Google - Fela tækjastiku (hide/unhide)

0:45

 

Við sýnum hvernig hægt er að fjarlægja tækjastikuna án þess að eyða henni. Með því er hægt að kalla hana fram aftur þegar þörf er á.

Reiknivél

1:15
  • Í þessari sýnikennslu er sýnt hvernig nota má Google sem reiknivél.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Um okkur | Síðuyfirilit | Skilmálar | Hafðu samband við okkur | ©2003 Námstorg ehf.