

Þeir sem reynt hafa að skrifa SMS skilaboð með því að nota lyklaborð farsíma þekkja að það getur tekið óratíma og sífelldar leiðréttingar á textanum, því einhvern veginn er erfiðara að hitta á réttan staf þegar það eru margir stafir á bak við hvern takka. En það er óþarfi að láta þessa erfiðu og tímafreku innsláttarleið trufla sig því að til er önnur leið sem er í senn fljótleg og einföld. Hægt er að skrifa skilaboðin beint á tölvuna og senda án þess að nota farsímann. Við sýnum hvernig þetta er gert í þessari sýnikennslu.