skip to: page content | links on this page | site navigation | footer (site information)

 

Áskrift | Hjálp | Skólavefurinn

Excel

Forsíða / Excel

 

Innra skjal (sheet)

Excel skjal skiptist í Sheet (innri skjöl). Þegar nýtt skjal er opnað má sjá 3 Sheet neðst. Hér er sýnt hvernig vinna má með sheet og þá er hnitakerfið skoðað líka .

smelltu á rauðu orðin til að velja sýnikennslu

Nafni breytt

1:45
  • Skipting Excel skjals í Sheet (innri skjöl)
  • Farið á milli innri skjala
  • Heiti innri skjala breytt.

Insert - delete - move

2:00
  • Innra skjali (Sheet) bætt við
  • Innra skjali eytt
  • Röð innri skjala breytt.

Flipar (litur)

3:00
  • Bakgrunnslit á flipa breytt.

Flipar (group)

2:40
  • Innri skjöl tengd saman, þannig að það sem er skrifað í einu þeirra birtist á sama stað í hinum líka.
  • Flipar aftengdir, þannig að það sem skrifað er í einu innra skjali birtist ekki í hinum líka.

Flipar (röð)

1:00
  • Röð flipa breytt.

Hnitakerfi

1:20
  • Skoðuð er skipting Excel skjals í raðir og dálka
  • Hnit á reitum.

Breidd dálks - AutoFit (breidd látin ráðast af lengd orða)

3:15
  • Sýndar eru tvær aðferðir til að breyta sjálfvirkt breidd dálka þannig að texti í þeim sjáist.

Excel - Velja reiti

Eitt af þeim atriðum sem notendur Excel þurfa að kunna er að velja reiti. Fyrri sýnikennslan er fyrst og fremst fyrir byrjendur í Excel, en þar er sýnt hvernig reitir eru valdir með músinni. Í seinni sýnikennslunni er sýnt hvernig nota má músina og lyklaborðið saman til að velja reiti. Seinni sýnikennslan er bæði hugsuðu fyrir byrjendur og þá sem eru lengra komnir.

Reitir valdir með mús 2:20

Reitir valdir með mús og lyklaborði3:10

Hnitalínur (grid) fjarlægðar

2:45

Til að hanna fallegt vinnuumhverfi í Excel eru hnitalínurnar (grid) stundum fjarlægðar að hluta til eða að öllu leyti. Við sýnum hvernig það er gert í þessari sýnikennslu.

Excel - Fela dálka/raðir (hide/unhide)

2:20

 

Sýnt er hvernig hægt er að fela raðir og dálka. Það getur komið sér vel þegar einungis ákveðnir dálkar eða raðir eiga að prentast út, en einnig til að fá betra yfirlit þannig að dálkar og raðir sem ekki er verið að vinna með í það skiptið séu ekki fyrir. Dálkar eða raðir sem hafa verið faldar er alltaf hægt að kalla fram aftur.

Excel - Festa raðir eða dálka (Freeze Panes)

2:05

 

 

Þegar Excel skjöl verða stór og fyrirferðarmikil getur mörgum reynst erfitt að hafa yfirlit yfir innihald þeirra. Þegar farið er niður skjal hverfa dálkaheitin og ef farið er til hliðar hverfa raðaheitin. Við sýnum í dag hvernig hægt er í Excel að festa raðir og dálka þannig að sama hversu langt er farið til hliðar eða niður sjást alltaf heiti raða og dálka.

 

Formúlur og reikniaðgerðir

Með því að nota formúlur (function) í Excel er hægt að framkvæma flesta útreikninga.
smelltu á rauðu orðin til að velja sýnikennslu

Autosum (sjálfvirk samlagning)

2:00

Sýnt er hvernig hægt er að leggja saman tölur í dálk eða röð.

Útreikningur látinn birtast jafnharðan í verkefnastiku

1:10

Sýnt er hvernig sjá má útreikning í Excel án þess að niðurstaðan birtist í reit, heldur í verkefnastikunni.

Tilvísanir

2:40
  • Sýnt hvernig vitnað er í reiti í formúlu.

Tilvísanir í reiti breytt

2:05
  • Því breytt í hvaða reiti er vitnað í formúlu
  • með því að nota bendilinn.
  • með því að skrifa inn í formúluna.
 

Reikniaðgerðir (+ - * / ( ) )

3:55
  • Dæmi reiknuð, þar sem notaðar eru tölur, þ.e. ekki vitnað í reiti.

Formúlur afritaðar

3:35
  • Formúlur afritaðar, þannig að sama formúla eigi við um fleiri en einn reit, t.d. tölur lagðar saman í dálki A og formúlan síðan afrituð í reiti í dálkum B og C, þannig að samtalan fyrir tölurnar í þeim dálkum reiknist líka út.

Svigar

1:00
  • Svigar lýsast upp og litast þegar farið er með bendilinn inn í þá.

Veldi

2:40
  • Veldisvísar skrifaðir

Meðaltal (Average)

1:55
  • Sýnt hvernig meðaltal er fundið.

Meðaltal (Average) - flýtileið (Excel 2002)

1:40
Sýnt hvernig meðaltal er fundið.

Útreikningur látinn birtast jafnharðan

1:10
  • Sýnt er hvernig sjá má útreikning í Excel án þess að niðurstaðan birtist í reit, heldur í verkefnastikunni.

    IF- fallið. 1. hluti

    02:35

  • Við kynnum IF-fallið með einföldu dæmi. If fallið er notað til að merkja við þá nemendur sem eru með lægri einkunn en 5,0. Seinna bjóðum við upp á fleiri dæmi.

    If fallið - 2. hluti

    03:35

  • Hér að ofan kynntum við IF fallið með einföldu dæmi, þar sem með hjálp fallsins var skrifað F fyrir framan þá nemendur sem voru með lægri einkunn en 5,0. Við höldum nú áfram og látum forritið gefa nemendum einkunnirnar A, B og F allt eftir því hvað þeir fengu í prófinu. Í lok kennslunnar sýnum við annað dæmi þar sem fjórir bókstafir eru notaðir til einkunnargjafar.

 

Myndrit

Myndrit geta gert alls kyns tölulegar upplýsingar auðskiljanlegri, auk þess sem þau hjálpa til við að bera saman ólíkar stærðir. Þá er eru þau líka miklu fallegri en tölur á blaði. Hægt er að hafa margs konar framsetningarmáta á myndritum, s.s. súlurit, línurit og kringlurit og einnig er hægt að velja um hvort þau séu í tví- eða þrívídd.

smelltu á rauðu orðin til að velja sýnikennslu

Myndrit

2:40
  • Sýnt er hvernig einfalt myndrit er búið til úr töflu.

Myndrit - dálkar valdir í Chart Wizard

2:55
  • Sýnt hvernig dálkar í töflu eru valdir eftir að komið er inn í Chart Wizard.

 

Senda bréf til margra

smelltu á rauðu orðin til að velja sýnikennslu

Prenta á merkimiða í Word - gögn úr Excel skjali

6:50
  • Þegar senda þarf til margra aðila í einu getur verið mikið hagræði í því að útbúa fyrst nafnalista yfir þá sem senda á til í Excel og nota síðan þann lista til að prenta á merkimiða í Word. Í þessari æfingu er sýnt hvernig það er gert.

Bréf með nafni viðtakenda. Nafnalisti sóttur í Excel

10:30
  • Sýnt er hvernig prentuð eru í einu lagi bréf til viðskiptavina, þar sem nafn og heimilisfang kemur fyrir í hverju bréf. Gögnin eru sótt úr nafnalista í Excel.

Sjálfvirk útfylling

smelltu á rauðu orðin til að velja sýnikennslu

Sjálfvirk útfylling (Autofill) - dagar, mánuðir, tölur

2:30
  • Við sýnum ykkur hvernig hægt er að láta Excel fylla sjálfkrafa inn nöfn daga eða mánaða í réttri röð og líka hvernig hægt er að fylla láta tölur birtast í ákveðinni röð, t.d. 2,3,4,5 eða 3,6,9,12.

Sjálfvirk útfylling (Autofill) - nafnalisti búinn til

3:55
  • Við lærum við að skilgreina nafnalista þannig að sé eitt nafn á listanum skrifað, birtast önnur nöfn líka.

Ýmislegt

smelltu á rauðu orðin til að velja sýnikennslu

Excel - Forritið ræst

0:55

Sýnt er hvernig Excel forritið er opnað .

Excel - Nýtt skjal

1:20

Sýnt er hvernig nýtt skjal er búið til í Excel.

Skjal opnað og lokað

2:40

Sýnt er hvernig skjal er opnað og lokað.

Skjal vistað

2:15

Við sjáum hvernig skjal er vistað í Excel.

Excel - Texti skrifaður

1:35

Sýnt er hvernig skrifaður er texti í Excel og gerðar breytingar á texta.

 

Skjali læst með leyniorði

2:15
  • Skjöl sem innihalda viðkvæmar upplýsingar getur verið gott að læsa þannig að enginn geti skoðað þau nema að skrifa leyniorð fyrst. Við sýnum ykkur hér hvernig það er gert. Við viljum minna á að vanda vel valið á lykilorði þannig að það gleymist ekki.

Sjálfvirk ræsing

1:30
  • Flestir nota aðallega ákveðin forrit við vinnu sína, t.d. Word, Outlook og Internet Explorer. Í stað þess að ræsa hvert þeirra fyrir sig á hverjum degi er hægt að ræsa þau sjálfkrafa þegar kveikt er á tölvunni og með því sparað nokkurn tíma.

    Office 2003 - Þýða valmynd yfir á íslensku

    2:30

  • Í nýjustu útgáfu af Office pakkanum frá Microsoft er stórskemmtileg nýjung. Hægt er að þýða textann á tækjastikunni yfir á íslensku. Við sýnum hvernig það er gert í þessari æfingu.

  • Office 2003 - Setja myndir fyrir framan tengla á valmyndinni

    2:20

  • Við sýnum hvernig setja má myndir fyrir framan tenglana á valmyndinni.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Um okkur | Síðuyfirilit | Skilmálar | Hafðu samband við okkur | ©2003 Námstorg ehf.