
Það fyrsta sem er gert þegar DK er tekið í notkun er að stofna fyrirtæki. Hægt er að vera með mörg fyrirtæki skráð. Við sýnum hvernig þetta er gert.
Sýnt er hvernig ný dagbók er stofnuð og hvernig kaup á vöru sem greitt er fyrir með peningum eru skráð í dagbók.
Skoðuð er bókun á nótu fyrir efniskaupum. Kynnt er flýtileið til að finna bókhaldslykil.
Skoðuð er bókun á reikningi vegna seldrar vinnu.
Skoðuð er bókun á reikningi vegna seldrar vinnu. Kynnt er flýtileið til að skrá bókhaldslykil.

Í stað þess að skrifa inn texta og bókhaldslykil fyrir algenga liði, eins og ritföng og síma er hægt að velja þá af lista sem við búum til. Þannig er hægt að spara sér töluverðan tíma við innslátt. Við sýnum í þessari æfingu hvernig fastur texti er notaður þegar færð eru kaup á bensíni í dagbók.
Það er hægt að flýta fyrir sér þegar fært er í dagbók með því að velja sjálfvirka lokun fylgiskjals, en þá fyllir forritið sjálfkrafa upphæð í reit vegna mótbókunar. Við sýnum hvernig þetta er gert um leið og við færum nótu vegna kaupa á ritföngum.
Sumar nótur eru með ólíkar vörur sem þarf að skrá á mismundandi bókhaldslykla. Við sýnum hvernig það er gert í þessari æfingu, auk þess sem við kynnum nýja leið til að fletta upp bókhaldslykli.
Kynnt er notkun á tilvísun, en hún nýtist t.d. við skiptingu kostnaðar á milli tveggja bíla.

Við sýnum hvernig fastir skýringartextar eru búnir til, en með því að nota þá er hægt að flýta umtalsvert fyrir þegar fært er í dagbók.

Við sýnum hvernig bókhaldslyklasett fyrirtækis er prentað út, en mörgum finnst þægilegt að hafa það við höndina þegar unnið er í bókhaldi.
![]()
Sýnt er hvernig hægt er að breyta bókhaldslyklasetti fyrirtækis svo að það henti betur þörfum okkar.
Þegar nýtt bókhaldstímabil hefst þarf að stofna það sérstaklega. Við skoðum hvernig það er gert í þessari sýnikennslu.
Við sýnum hvernig dagbók er prentuð út.
Við sýnum hvernig dagbók er prentuð út.
Allir sem skrá bókhald þurfa að taka afrit með reglulegu millibili. Við sýnum hvernig taka má öryggisafrit af dagbók og síðan setja inn aftur. Athugið að taka þarf líka afrit af öllum gögnum fyrirtækisins með reglulegu millibili.
Öryggisafrit
tekið 01:40
Öryggisafrit
sett inn 00:35