
Læknir nokkur bað kunningja sinn, sem var meinfyndinn, að skrifa
eitthvað í stefjabók sína, er lá á borðinu.
Maðurinn settist við og fór að skrifa:
,,Síðan þessi ágæti læknir fór
að stunda sjúklinga, hafa sjúkrahúsin algjörlega
lagst niður..............”
Þegar læknirinn sá þessa byrjun greip hann fram í og
sagði: ,,Nei, blessaður vertu, þetta er allt of mikið hól.”
,,Bíddu augnablik”, bætti hinn þá við,
,,ég var ekki alveg búinn og skrifaði svo: ,,.....en
kirkjugörðunum hefur fjölgað að mun”.
Drengurinn: ,,Frændi! María vil að apinn minn giftist
brúðunni hennar. Giftast apar?”
Frændinn: ,,Já, eingöngu apar”.